sunnudagur, febrúar 8

Próf

Ég hef komist að því að stórmerkilegir hlutir gerast þegar maður á að vera að læra fyrir próf. Ég er að fara í tvö próf í næstu viku og ætti því að vera á fullu að læra núna. En allt í einu ákvað ég að búa mér til bloggsíðu. Það finnst mér stórmerkilegt. Ég hef nefnilega alltaf ætlað mér að búa til svona síðu en aldrei komið mér til þess að gera það. Það er eins og maður gefi sér frekar tíma í allskonar hluti þegar maður á að vera að læra.
Sumir fara að taka til á fullu og aðrir setjast fyrir framan sjónvarpið og horfa á þætti um hárgreiðslufólk og líf þeirra í Englandi (ég get nú ekki sagt að ég hafi einhverntíman ætlað að gefa mér tíma í það).

Ég hef samt lúmskt gaman af prófatörnum. Óneitanlega er gaman að vaka fram eftir nóttu og lifa á koffeini, hvort sem maður fái það úr kaffi, orkudrykkjum eða létt capochino mjólk (sem ég mæli sérstaklega með). Ganga svo um í sömu þæginlegu, skítugu fötunum aftur og aftur og enn aftur. Drekka í sig upplýsingar þangað til maður fer að fá sjónskynstruflanir. Þetta gefur lífinu gildi, það er ekki spurning.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home