miðvikudagur, febrúar 18

Jæja þá er þessari blessuðu heilaprófatörn loksins lokið. Þetta endar vonandi allt saman vel hjá mér og bekkjarsystkynum mínum. Núna er ég byrjuð í nýjum kúrsum, lífaflfræði, hreyfifræði og frumulífeðlisfræði vöðva og tauga. Þetta hljómar allt gífurlega spennandi og það ríkir ákafleg gleðin innan bekksins.

Ókei það er spurning um að dempa þessa jákvæðni aðeins niður, enda hreynt út sagt vonlaust veður úti. Við í undanförunum í hjálparsveit reykjavíkur eigum að halda sameiginlega æfingu í kvöld. Það verður spennandi að sjá hvernig hún endar. Ég mun allavega taka með mér eitthvað vatnshelt í kvöld. Svona til að halda áfram á jákvæðu nótunum, þá efast ég ekki um að þessi æfing verði sú allra besta í vetur.

Annars þarf ég að fara að mixa þessa síðu eitthvað. Bæta inn á comment dálk og teljara og fleirru dúlleríi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home