


Dagur 3
Gengum upp á snæfellsjökul og renndum okkur niður hann á upplásnum kleinuhringi sem gat tekið okkur allar í einu niður. Það var geggjað.
Upp á jöklinum tókum við eftur flottu brimi austur við Arnarstapa og ákváðum því að kíkja á það næst. Á leiðinni tókst okkur að festa litla jarisinn en það kom ekki að sökum því bóndi, sem við seinna komust að ætti heima á Lísuhóli, kom okkur til hjálpar.
Þurftum að ganga smá spöl að fjörunni og okkur til mikillar skemmtunar fundum við frábært boulder svæði á leiðinni. Því var stoppað við klettana og aðeins klipið í þá.
Enduðum daginn á pizzu að hætti Ólafsvíkinga og skelltum okkur í bústað við Brimilsvelli því næsta nótt átti að vera ansi köld og bóndinn gaf okkur mjög góðan díl.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home