Græna eldingin
Það er nú meira hvað þetta er stutt vika, ný byrjuð en fer senn að ljúka. Það var nú meira furðulega veðrið í gær, ef það var ekki sól þá var dembandi rigning eins hellt væri úr risafötu.
Ég kemst ekki hjá því að fylgjast vel með veðrinu þar sem fararskjótinn minn er neongræna hjólið mitt. Mér er farið að þykja ansi vænt um það. Ég get hlaðið fullt af töskum á það því að aftan er böglaberi og að framan líka. Svo á ég þessa geggjuðu tösku sem hægt er að setja framan á stýrið eins og karfa, en svo smellir maður henni bara af eins og ekkert sé, stórmerkilegt.
Mér finnst alger forréttindni að hjóla. Maður kemst alveg ótrúlegustu vegalengdir á stuttum tíma en samt er maður miklu tengdari umhverfinu heldur en við akstur. Þá þarf maður líka að keyra á götunum, en á hjólinu getur maður farið hvert sem er. Í tilefni af veðrinu í gær, þrumur og eldingar, hef ég ákveðið að skíra hjólið mitt "græna eldingin".

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home