sunnudagur, febrúar 27

Háskólakynning

Ég hef aldrei litið á mig sem góðan sölumann. Mér finnst ákaflega leiðinlegt að selja fólki hluti, telja fólki trú um að það sé að gera kostakaup með því að kaupa eitthvað algert drasl. Um áramótin þegar ég sel flugelda þá líður mér ákaflega illa. Fólk kemur og maður sér að pyngjan er ekki beinlínis þung hjá því en samt kaupir það alveg heilan helling af púðurdrasli sem springur á stuttum tíma. Það er einungis sökum þess að peningarnir fyrir söluna ganga til Hjálparsveitarinnar sem ég gerist sölumaður á þessum ákveðna árstíma.

Það kom svo upp á í dag að ég gerðist sölumaður aftur. Það var á háskólakynningunni. Þar var sjúkraþjálfunarskor með glæsilegan bás þar sem kynnt var ákaflega áhugavert efni. Þarna stóð ég og talaði bókstaflega endalaust við forvitið fólk og seldi þeim hugmyndina að fara í þetta nám. Þetta er í eina skiptið sem ég hef notið þess að selja eitthvað.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home