Prófatarnir og ljóskur
Mikið rosalega verður maður steiktur í prófatörnum. Við höfum verið stanslaust upp í skóla að æfa okkur á öll rafmagnstækin sem verða á verklega prófinu okkar. Ég er að pæla í því hvort maður verði extra steiktur á því að vera í kringum allt þetta rafmagn og bylgjur. Allavega þá kíktum við á Pítuna til að svala hungrið og það má með sanni segja að við höfum öll (flest) verið frekar steikt. Það þurfti að endurtaka alla brandara og frásagnir að minnsta kosti fimm sinnum svo allir heyrðu. Ég hef líka komist að þeirri vísindalegu niðurstöðu að í prófatörnum verði ég meiri ljóska. Það er eins og ákveðið vitsmunasvið hverfi þegar ég er að reyna að troða meiri upplýsingum inn í heilann. En þetta er að sjálfsögðu bara tímabundið.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home