mánudagur, nóvember 29

Skautar og pottaplöntur

Komst að því í morgun að ég hefði frekar átt að grípa í skautana heldur en hjólið til að komast upp í skóla. Allavega tókst mér að detta á planinu fyrir framan íbúðina mína. Ég rann skemmtilega á maganum eftir endilöngu bílastæðinu. Ég hef þá kenningu að ég hafi mikla hæfileika í að forða mér frá vondum föllum, allavega tókst mér að renna mjúklega eftir maganum í morgun. Ég held ég hafi lært að detta "vel" þegar ég var að æfa handbolta.

Ákvað í gærkvöldi klukkan 12 að miðnætti að umpotta blómaplöntunum mínum. Gaman að segja frá því. Ég held að nágrannarnir hafi furðað sig á hvað ég væri að gera út á svölum á þessum tíma með mold út um allt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home