föstudagur, nóvember 12

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld..

Ég er nýbúin að skrifa um síðustu helgi og nú blasir sú næsta við. Það er alveg merkilegt hvað tíminn getur liðið hratt.

Þingholtin og Hallgrímskirkja mynna mig óneitanlega á Jólin. Ég var að keyra um þetta svæði í gærkvöldi þegar snjóaði og fann ég fyrir fyrsta jólakítlingnum ,eins og ég kalla hann. Þetta er óvenju snemma, oftast hef ég neitað mér að hlakka til jólanna þar til prófatörnin er búin. Að þessu sinni ætla ég ekki að gera það. Ástæða þess að þetta svæði mynnir mig á jólin er lílegast sú að ég bjó á Bergstaðarstrætinu um síðustu jól. Ég þurfti ekki annað en að fara út og labba tíu skref, þá var ég komin að Skólavörðustígnum, sem er ávallt fagurlega skreyttur á þessum tíma. Svo var jólabúðin rétt hjá íbúðinni en þar eru alltaf jól. Ég mun óneitanlega sakna gömlu íbúðarinnar um þessi jól.



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home