miðvikudagur, október 27

Þreyta

Var á fimleikaæfingu. Við Elín tókum gott þrek eftir æfinguna og píndum okkur vel. Markmiðin eru alltaf að aukast, því maður er stöðugt að sjá eitthvað nýtt sem gaman væri að geta. Pressuhandstaða er ofarlega á listanum ásamt langkippur og heljarstökk úr kyrrstöðu.

Æji ég er að pæla í að fara bara að sofa, verst að klukkan er bara 7. Ætli ég leggist ekki bara fyrir framan sjónvarpið og horfi á bráðavaktina og amerikans next top mode. Við stelpurnar í bekknum gerðum veðmál hvernig úrslitin í síðarnefnda þættinum færu. Við veðjuðum um fyrstu þrjú sætin. Best að sjá hvort stelpurnar mínar séu ekki að standa sig vel.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home