föstudagur, október 22

Sögustund

Fyrir alllöngu síðan þá var ég stödd í Árbænum. Aðal sjoppan þar heitir Skalli. Ég ákvað að taka smá ísbíltúr á jeppanum hans pabba og kíkja í búðina. Bílastæðin fyrir utan sjoppuna aru aflíðandi upp á við í báðar áttir. Ég lagði bílnum, fór inn og keypti mér þennan dýrindis ís. Þegar ég kem út úr sjoppunni sé ég gráa toyotu á ferðinni afturábak í átt að jeppanum. Við nánari athugun sé ég að enginn er inn í bílnum. Ég hraða mér í veg fyrir toyjotuna sem stefnir hraðar og hraðar í átt að jeppanum. Á stórfurðulegan hátt tekst mér að stoppa toyotuna með annarri og halda á ísnum með hinni. Þetta hlýtur að hafa lúkkað vel. Ef ég hefði verið með sólgleraugu þá hefði þetta jafnvel verið enn svalara.

Bílstjórinn kom svo út úr sjoppunni furðu lostinn yfir því að bíllinn hans hefði ferðast alla þessa leið. Þetta var strákur sirka 20 ára gamall, alger töffari. Missti reyndar aðeins kúlið þegar hann sá hvað hafði gerst. Ég vinsamlegast bendi honum á að það teldist ekki skynsamlegt að skylja við bíl sem stendur í halla í hlutlausum og ekki með handbremsu. Svo fékk ég mér bita af ísnum og keyrði í burtu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home