fimmtudagur, október 21

Tóm vitleysa

Var á 3 tíma fimleika æfingu. Ég missti mig aðeins og gat ekki hætt. Ég finn hvernig harðsperrurnar eru að búa sig undir að hertaka líkama minn. Ég er komin með ýmis markmið, langtíma og skammtíma. Til þess að ná þessum markmiðum þarf ég vægast sagt að styrkja mig talsvert. Þess vegna píndi ég mig algerlega áfram í þrekinu eftir æfinguna í kvöld.

Annars er blaktími í fyrramálið með bekknum. Svo er hópþjálfun sem Guðbjörg og Elín eiga að sjá um. Við eigum held ég að leika gigt veikt fólk. Það verður bara tekið létt á því á morgun sem betur fer. Það er ekki hægt að vera stöðugt í vitleysunni, maður þarf smá hvíld á milli.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home