föstudagur, október 1

Jæja, nú kann ég að setja inn myndir. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Talandi um að læra eitthvað þá kom það mér virkilega á óvart hvað maður heldur í lærðar hreyfingar sem maður hefur kannski ekki notað í mörg ár. Sem dæmi um þetta þá fór ég á fimleika æfingu, oldies, um daginn. Þetta var í alla staði frábær æfing, fyrir utan það að ég var í algeru rústu daginn eftir. Málið er að ég kann allar hreyfingarnar sem ég lærði fyrir 10 árum síðar, heljarstökk, flikk, kraftstökk og pike og svo framvegins. Það sem skiptir sköpum nú er að ég er sirka 20 kílóum þyngri. Ég var ekki alveg að gera mér grein fyrir því á æfingunni og vildi náttúrulega gera allt sem ég gat áður fyrr. Þetta endaði að sjálfsögðu með heiftarlegum harðsperrum. Þess vegna er ég núna í þessum skrifuðu orðum að fara í þrekþjálfun upp í Háskóla Íþróttahúsi. Ég mæli eindregið með þessum tímum sem eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Tíminn byrjar kukkan fjögur sem þýðir að ég þarf að drífa mig.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home