þriðjudagur, september 7

Skólinn

Skólinn er því miður byrjaður aftur! Neinei, þetta er nú alveg ágætt. Ég bara get ekki komið mér til þess að byrja að lesa aftur. Sérstaklega þegar fögin eru ekki meira spennandi en tölfræði og rafmagnsfræði. Þjálffræðin er sem betur fer að byrja í dag þar sem við förum í verklegt nám á Grensás spítala. Þar munum við skella okkur í sundföt og læra sundleikfimi. Svo hlakka ég ákaflega mikið til að fara í verklega tíma í hreyfistjórn og hreyfigreiningu. Þessir tímar kallast víst líkamsvitund og eru fyrst og fremst slökunartímar þar sem nemendur liggja á dýnum og finna þyngdarpunkt líkamans og svo framvegins. Það ku vera í góðu lagi þó maður sofni í þessum tímum, enda er það víst algengt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home