Heilráð
Það hefur komist í tísku hjá mér að vera með kvefpestir síðasta mánuðinn. Þetta er í rauninni sama kvefdrullan sem ég hef verið með. Þessi reynsla mín hefur aukið þekkingu mína og er ég þakklát fyrir það. Ég kynntist nefnilega afurð sem nefnist "Knorr bollasúpur".
Þegar kvefhundurinn hrjáir mann þá einfaldlega hitar maður vatn, saxar eitt hvítlauksrif niður í smáa bita og skellir Knorr góðgætinu út í. Ég mæli með þessu ráði fyrir þá sem eru einhleypir, eða allavega ekki í miklum samskiptum við aðra einstaklinga þegar þeir eru veikir. Hvítlaukur á nefnilega til að gefa frá sér sterka lykt og það er nóg að opna munninn til að fylla 60 fermetra íbúð af hvítlauksbrælu, hef sannreint það.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home