laugardagur, febrúar 28

Kvikmyndagagnrýni

Ég fór um daginn í bíó, Regnbogann. Ég vil byrja á því að hæla því bíói. Það voru ákaflega fáir í bíóinu sem ég tel vera mikinn kost. Þar að auki voru mjög góð sæti, svo er svona kaffihúsastemming fyrir utan salina. En allavega þá fór ég að sjá myndina "The big fish" ásamt móður minni. Ég hafði ekki heyrt neitt um þessa mynd og vissi því ekkert um hvað hún var. Myndin var hreynt út sagt alger snilld. Hún var fyndin, listræn, sorgleg og ævintýraleg. Sem sagt, gæti ekki verið betri. Ég mæli eindregið með henni. Hún fær **** stjörnur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home