sunnudagur, febrúar 22

Það fór svo að ég komst ekki í þetta blessaða heilapartý því ég var veik. Það sem mér finnst hvað leiðinlegast er að vera veik. Reyndar var það ekki svo slæmt í þetta skipti því ég var hjá systur minni og við plöntuðum okkur bara fyrir framan sjónvarpið og létum fara vel um okkur. Keyptum okkur sveittustu hamborgara sem ég hef nokkru sinni séð í sveittustu búllu bæjarins (BSÍ).

Annars er konudagurinn í dag. Í því tilefni vil ég óska konum landsins til hamingju með þennan dag. Andri (kærasti minn) er líklegast núna á leiðinni frá Ísafirði þar sem hann var að taka þátt í ísklifurfestifali. Ég verð fyrir miklum vonbrigðum ef hann kemur ekki heim með gjöf handa mér. Reyndar eru einu búðirnar á leiðinni milli Ísafjarðar og Reykjavíkur flest allar bensístöðvar. En hann getur alltaf gefið mér rúðuþurku, skrúfulykil eða jafnvel bílabón. Þessar gjafir eru reyndar ekkert konulegar og þar að auki eigum við ekki bíl. Þannig að ég fyrirgef honum að þessu sinni ef hann kauðir ekki gjöf handa mér (svo keypti ég ekki gjöf handa honum á bóndadaginn, en það er aukaatriði).

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home