Páskafrí
Nú styttist óðum í páskafrí. Ég mun halda Norður ásamt Andra, Steppó frænda og Halla. Planið er að gista í einum af fallegustu dölum landsins, Svarfaðardal, sem gengur inn af Dalvík. Klifurdótið og skíðadótið verður tekið með og brúkað mikið. Svo verður haldið í fermingarveislu á Svalbarðseyri, sem er hinu megin í firðinum. Svo verður skíðað meira og klifrað meira. Gaman, gaman.
Gleðilega gula páska!
Gleðilega gula páska!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home