þriðjudagur, mars 30

Klúrt

Kíkti í öskjuhlíðina um daginn með Andra til þess að klifra eilítið í sumarsælunni sem var og kemur vonandi aftur. Það er nefnilega einn staður í Öskjuhlíðinni sem hefur að geyma þessar fínu boulder klifurleiðir. Þegar menn bouldera þá klifra menn og konur ekki í línu því oftast er ekki klifrað upp fyrir 3 - 4 metra. En það getur samt verið vont að detta og því eru til sérstakar boulder dýnur (ég þarf einmitt að verða mér út um svoleiðis græju). Það getur því verið mjög skondið að sjá tvo klifrara gangandi á góðum sumardegi í Öskjuhlíðinni, léttklædda og haldandi á dínu. Ég efast um að almennur vegfarandi geti sér þess til að þeir séu að fara að klifra. Nei það koma eflaust einhverjar aðrar hugsanir upp í huga þess einstaklings.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home