þriðjudagur, ágúst 3

10-11

Samkvæmt Fréttablaðinu eru 10-11 búðirnar þær dýrustu í bænum. Það vill svo skemmtilega til að eina slíka er að finna á stúdentagörðunum. Sökum staðsetningar búðarinnar versla ég ekki annarsstaðar. Þetta er ekki allskostar gott fyrir fjárhaginn en þegar maður er bíllaus þá nennir maður einfaldlega ekki að hjóla með matarpokana út um allan vesturbæinn.

Svo ég haldi áfram að blaðra um stúdentagarðana þá var ég að velta því fyrir mér undir hvaða félagslið þetta svæði telst. Ég er nefnilega svolítið hrædd um að þetta teljist sem hluti af vesturbænum og þar af leiðandi bý ég núna á yfirráða svæði KR inga, mjög slæmt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home