Lærdómur
Nú er páskafríi lokið og við tekur því lærdómurinn. Það má segja að fríið hafi verið hið ljúfasta fyrir norðan. Það var gengið á fjöll og skíðað á Siglufirði, farið í fermingarveislu og fjölskylduboð. Nú þarf að koma sér í annan gír, prófgírinn. Það tekur allataf svolítinn tíma að komast í hann. Einn dagur fer í að undirbúa lesturinn, raða saman glósum og svoleiðis. Einn dagur fer í að skipuleggja hvernig skal læra. Annar dagur fer í að taka til á skrifborðinu og enn annar í að undirbúa sig andlega fyrir lesturinn. Mér er því ekki til setunnar boðið, best að fara að hefjast handa.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home