Ritstífla á hæsta stigi
Jæja. Það er undarlega tilfinning að vera komin fyrir framan tölvuna og slá á lyklaborðið. Ég þyrfti að rifja upp ritvinnsluna sem ég lærði í Verzló. Það er svona þegar maður er út á sjó allan daginn með bandbrjálaða krakkagríslinga, þá er svolítið erfitt að komast í tölvu.
Núna sem stendur er ég í vinnunni (Siglunesi) þar sem vindurinn mældist 18 m/s. Það telst nokkuð gott. Fórum með gríslingana á Jónas feita (Jonny the fat) og þegar krakkarnir voru orðnir bláir og líktust blautum tuskum var haldið í land. Annars eru geggjaðar öldur núna útfyrir nesinu.
Hey verzlunarmannahelgin er að sigla inn í sjónadeildarhringinn (ókey, ég verð að fara að komast frá þessum siglingum, maður verður alveg heilaþvegin). Annars segi ég bara góða skemmtun.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home