mánudagur, ágúst 9

Sumarið

Þau höfðu nú rétt fyrir sér júróvisíonfararnir forðum daga þegar þau sungu "tíminn líður hratt á gervihnattaöld". Það er eins og sumarið hafi liðið á met-tíma. Ég veit ekki hvort ástæðan sé sú að ég sé farin að eldast? Það eru ekki nema tvær vikur í að maður fari að kaupa sér rándýrar skruddur, setjast fyrir framan skrifborðið og lesa í þjálffræði, rafmagnsfræði og tölfræði.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home