Geisladiskur Mánaðarins
Ég hef verið að sökkva mér í geisladiskinn "I'm your man" með Leonar Choen síðustu vikurnar. Þessi diskur var saminn áttatíu og eitthvað og ber augljóslega keim af því. Lögin byrja öll á eightís introum sem mynda skemmtilegt mótvægi við hina miklu bassarödd Choens. Diskurinn hefur að geima slagara á borð við "First we take Manhattan", "Take this walse" og að sjálfsögðu "I'm your man". Ég verð að taka það fram að síðast nefnda lagið er það kynþokkafyllsta sem ég hef heyrt fram að þessu.
Diskurinn hefur að geyma vægast mjög spes lag. Það virðist vera hálfgerð steypa við fyrstu hlustun en kemur svo skemmtilega á óvart þegar maður hlustar meira á það. Ég get ekki annað en mælt með þessum disk og gefið honum *** af fjórum mögulegum. Gæti verið að hálf stjarna bætist við því oftar sem ég hlusta á diskinn.
P.s. ég mæli að sjálfsögðu líka með geisladisknum Meira! með Brúðarbandinu ef maður vill hlusta á stelpur sem rokka.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home