Furðulegt kvöld
Kvöldið byrjaði rólega. Það var mataboð hjá tengdó eins og alltaf á mánudagskvöldum. Stofan var skreytt ljósum, kertaljósum og glærum seríum. Við átum með bestu lyst heimagerðu pizzuna sem Bjarni hafði eldað. Eftir glaðlegar umræður yfir matarborðinu fórum við inn í "betri" stofuna þar sem kaffi var sötrað og rætt um líðandi stundir.
Ekki leið á löngu þar til þessi ró, sem umlukti okkur, raskaðist. Jóna fékk símtal varðandi blaðagrein um hana sem byrst hafði síðastliðinn sunnudag. Innihélt greinin talsvert að staðreindarvillum um fjölskylduna. Þetta var fyrsta röskunin.
Næsta röskun byrjaði með því að ég opnaði útidyrnar að húsinu til að hleypa Bjarna inn. Hann hafði skroppið á bílnum niður í kirkju til að ná í einhver gögn. Við mér blasti svartur reykjarmökkur. Við hentumst í snatri út í bíl. Þegar við komum á staðinn voru þó nokkrir forvitnir áhorfendur mættir. Það hafði kviknað í Hringrás sem er endurvinnslustöð fyrir bílhræ. Ég hafði aldrei á æfinni séð jafn mikinn eld og eins svartan reik. Slökkvuliðsmennirnir voru dreifðir í kringum eldinn en virtust ekki geta gert nokkurn skapaðan hlut til að hemja hann. Aðkomufólk flykktist að staðnum og margir hverjir drógu upp myndavélar. Eftir að hafa horft á Þennan óhemju kraft eldsins í dágóða stundum ákváðum við að halda heim.
Bjarni skuttlaði okkur skötuhjúunum heim vestur í bæ. Þegar við vorum komin á bílastæðið fyrir framan íbúðina drapst á bílnum. Hann var bensínlaus. Andri fékk lánaðan bíl hjá vini sínum sem jafnframt er nágranni okkar á görðunum. Þeir feðgar keyptu bensín á brúsa og fóðruðu bílinn.
Við Andri settumst í græna sófan okkar, lúin eftir þetta viðburðaríka kvöld. Allt í einu glumdu sms hringingar úr símum okkar, alveg í kór. Þetta gat aðeins þýtt eitt, útkall. Jú viti menn, það var útkall út af brunanum. Það þurfti að flytja íbúa, sem búa í blokkum á Kleppsveginum, í Langholtsskóla. Þetta var gert sökum reikmengunar.
Núna er ég farin að sofa.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home