Ísöld?
Ég vil nota tækifærið og þakka þessu dásamlega veðri sem hefur verið undanfarna daga. Nú mun frostið hverfa í næstu viku og hitinn koma, það er miður.
Ég var að horfa á athyglisverðan þátt um daginn í ríkissjónvarpinu. Þessi þáttur var um hækkandi hitafar og rannsóknir á Golfstraumnum. Eftir að hafa horft á þennan þátt sat ég í sófanum og fann hvernig þunglyndið streymdi yfir mig. Niðurstöður rannsóknanna voru þær að eftir x langan tíma væri líf á norðurhveli jarðar gerbreytt.
Sökum gróðurhúsaáhrifa hefur hitafar aukist. Þetta veldur auknu ofsaveðri, stormum, flóðum o.s.frv.. Það sem er kannski mikilvægast er að Grænlandsjökull er að bráðna. Það þýðir meira ferskvatn sem bætist í sjóinn. Þegar hlutfallið í sjónum milli saltvatns og ferskvatn er x mikið þá mun, samkvæmt þessum rannsóknum, Golfstraumurinn ekki komast eins norðarlega eins og hann gerir. Því spyr ég, styttist í næstu ísöld? Samkvæmt þessum þætti er svarið já.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home