Þorláksmessa og Þakkir
Loksins eru prófin búin.
Ég komst að því í dag að það hefði verið betra ef prófunum hefði lokið fyrr. Núna hef ég ekki nema tvo daga til að kaupa allar jólagjafirnar. Ef ekki væri fyrir góða samvinnu okkar Andra í jólagjafakaupunum þá væri ég í vondum málum.
T.d. vorum við í Smáralindinni og höfðum klukkutíma til stefnu því það lokar víst klukkan tíu. Á þessum klukkutíma náðum við að kaupa sex gjafir, geri aðrir betur.
Þorláksmessa á morgun. Við Andri stefnum ótrauð á að ganga niður Laugarveginn þrátt fyrir gífurlega kalda veðurspá. Við munum smeygja okkur í ullarnærfötin og taka kakaó með í brúsa. Engin spurning.
Ég vil nota tækifærið og þakka ýmsum aðilum fyrir nýafstaðna prófatörn:
1) Borðtennisborðinu upp í skóla
2) Grænum kosti, hollur og hressandi matur (kemur lagi á hægðirnar)
3) Ara, Elínu og Jenna fyrir spennandi og skemmilega borðtennisleiki
4) Bílnum hennar Bryndísar, hann var duglegur að fara með okkur í skottúra hingað og þangað
5) Ara, Hauk og Tótu fyrir að mæta í bekkjarpartíið sem ég hélt (30% mæting, nokkuð gott)
6) Hjólinu mínu, datt ekki nema einu sinni á því á þessu tímabili
7) Veðrinu, það hefur haldið jólaskapinu gangandi
ps. Gugga systir er með skemmtilegt innlegg um Túrkmenista

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home