Verkleg próf og stress
Jæja, þá eru tvö próf búin og mesta stressið í höfn. Það er merkileg upplifun að taka verkleg próf. Gengið er inní stofu þar sem tveir prófdómarar sitja við borð í enda stofunnar en bekkur er í henni miðri. Sá nemandi sem var á undan í prófinu leikur sjúkling.
Dreginn er miði þar sem á stendur verkefnið. Ég fæ smá umhugsunarfrest þar sem ég ákveð hvað skal sýna. Ég má ekki vera boginn í baka heldur þarf að passa vel upp á líkamsstöðu mína. Ég þarf að passa upp á að sjúklingi líði vel. Svo þarf ég að framkalla meðferð og lýsa því sem ég er að gera. Meðan á öllu þessu stendur horfa prófdómararnir á hverja einustu hreyfingu og hrifsa eitthvað niður á blað.
Að lokum spurja dómararnir fullt af spurningum um meðferðina og af hverju hún var valinn fremur en einhver önnur.
Það er merkilegt hvað stress hefur neikvæð áhrif í svona prófi. Margir samnemendur mínir fundu fyrir miklu stressi, þar var ég ekki undantekning. Það komu allir eldrauðir út úr stofunni með púlsinn á fullu og jafnvel verki í lungum sökum hraðs andardráttar. Fyrir prófið voru farnar margar klósett ferðir og get ég vottað um að lyktin á kvennaklósettinu í skólanum var ekki sú besta.
Nú er þessu loks lokið og bara eftir gömlu góðu skriflegu prófin.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home