föstudagur, júlí 8

Vinna - London - Handbolti

Ég sit í vinnunni og hlusta á Ramóna í útvarpinu, sem er alltaf stillt á 93,4. Þetta er óskastöð skjólstæðinganna sem koma í sjúkraþjálfun til mín en ég vinna á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Ég get ekki kvartað yfir þessari sumarvinnu, það er nóg að gera en samt ekki stressað andrúmsloft heldur afslappað og rólegt.

Hræðilegar fréttirnar frá London í gær. Það fór hrollur um mig þegar ég heyrði fréttirnar í útvarpinu í gærmorgun. Einn skjólstæðingur minn á heimilinu spurði hvort hann mundi nokkuð lifa til þess að verða vitni af alheimsfrið.

Ég er að æfa á fullu núna með stjörnunni. Það er svolítið athyglisvert að byrja að æfa aftur íþrótt eftir langa pásu (mjög langa). Það er eins og ákveðnar hreyfingar komi bara alveg sjálfkrafa en annað þarf maður að grafa eftir.

Jæja, ég nenni ekki skrifa meira

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home