laugardagur, maí 20

Road Trip



Dagur 1

Ég, Elín og Hildur áttum allar dauðan tíma eftir prófin og ákváðum því að nota hann og skella okkur í road trip. Við kíktum á veðurspánna áður en við fórum og svo var haldið á þann stað þar sem besta verðrið átti að vera. Fyrir valinu var Snæfellsnes. Við keyrðum í Borgarnes þar sem hinn stóri og glæsilegi Bónus var heimstóttur og matur fyrir þessa fjögurra daga ferð keyptur. Svo skelltum við okkur í sundlaug staðarins.
Þegar við vorum orðnar hreinar og fínar og búnar að kynna okkur Borgarnes keyrðum við af stað út á Snæfellsnesið. Fengum að tjalda á túni hjá bónda nokkrum að Borg sem er á suðaustanverður nesinu. Þar var blá indiánatjaldið reyst og ilmandigóður pastaréttur útbúinn.
Svo var aðeins gripið í fótbolta fyrir svefninn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home