þriðjudagur, maí 30

n. medianus


Þessi taug liggur út frá hálstaugaflækjunni eða plexus cervicalis. Plexusinn kemur út frá hálshrygg milli m. scalineus ant. og med. Taugin liggur svo undir pectoralis minor og major og fer svo medialt við m. biceps niður handlegginn í sulcus bicipitalis medialis. Rétt neðan við olnboga, á honum innanverðum, stingur hún sér undir appeneurosis m. bicipitis brachii og mm. flexores antebrachii. Þar fer hún undir fyrsta lag vöðva framhandleggjar og liggur að mestu undir m. flexor digitorum superficialis. Þegar taugin gengur yfir í lófan fer hún undir lig. transversum carpale ásamt beygjusinum fingra. Þar dreifir hún öngum sínum í þumalfingur, vísifingur, löngutöng og hálfan baugfingur.

Eins og áður hefur komið fram er ég með klemmu á þessari taug einhvers staðar þar sem ég fæ dofa í þumalfingur við teygju á þessari taug, því meiri teygja því meiri dofi. En það eru margir staðir sem koma til greina. Í fyrsta lagi gæti verið þrengsli í carpal tunnel þar sem allar sinarnar troða sér í gegn. Ég er búin að útiloka það með því að hafa úlnlið í flexion í hálfa mínútu og athuga hvort það valdi dofa. Svo gæti fyrsta vöðvalag í framhandleggnum verið að þrengja að tauginni sem liggur þarna undir. Þá eru það fyrst og fremst m. pronator terest og m. flexor digitorum superficialis. Svo þar sem hún liggur undir pectoralis minor og major ásamt n.radialis og n. ulnaris þá gætu þessir vöðvar verið að þrengja að henni. Svo gætu scalinearnir verið stuttir og þrengja að plexusnum. Að lokum gæti ástaðan legið í hálsliðinum.

Þannig get ég gert nokkra hluti til að laga þetta. Ég get teygt framhandleggsvöðvana, flexorana og pronator teres. Tekið nudd og faciu teygju þar. Svo get ég teygt pectoralana og einnig tekið faciu teygju á þeim. Svo er það að teygja scalineana. Svo get ég pumpað taugina, þ.e. tekið tauga teygju, haldið í smá stund og gert nokkrar endurtekningar. Að lokum væri gott að taka liðkandi æfingar fyrir CT mót með. Svo er bara spurning hvort þetta virki :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home