Þriggja daga helgi - ónei
Já 17. júní næstu helgi og ekki þriggja daga helgi. Þetta gengur ekki. Mér finnst að það ætti alltaf að vera þriggja daga helgi yfir sumarið (eða fjögurra daga vinnuvika). Hef heyrt af tilvonandi frambjóðenda fyrir alþingiskosningarnar sem ætlar að bjóða sig fram með það eina mál á dagskrá að frídagar lendi sitthvoru megin við helgar. Annars var víst einhver frambjóðandi í Danmörku sem var líka með eitt stefnumál á sinni dagskrá. Það var að hjólreiðamenn í Danmörku fengju alltaf meðvind. Hressandi gaur, mér skilst að hann hafa eytt öllum kosningastyrktarsjóðnum frá Danska ríkinu í eitt heljarstórt partí.
Annars verður næsta helgi spennandi enda íslenska landsliðið að keppa við það sænska í höllinni á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Áfram Ísland.
Annars verður næsta helgi spennandi enda íslenska landsliðið að keppa við það sænska í höllinni á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Áfram Ísland.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home