Sjálfsmeðferð
Sjálfsmeðferðin hefur gengið ljómandi vel við taugaklemmunni. Hef verið að velta fyrir mér að það er nú alveg ágætt að upplifa sjálf ýmsa áverka þar sem ég er nú tilvonandi sjúkraþjálfari. Þannig er hægt að gera sjálfstilraunir til að finna út hvað virkar best. T.d. með þennan dofa. Ég hef lært ýmislegt um taugaertingu og hvernig hún lýsir sér en að finna fyrir einkennunum sem maður þarf að kunna hjálpar manni við að skilja hernig þetta er. Ég verð þó að viðurkenna að mig langar ekkert sérstaklega mikið til að fá brjósklos til að vita hernig upplifunin í raun er. Annars var ég að taka saman þá áverka sem ég hef hlotið í gegnum tíðina. Þeir eru bara ágætlega margir: Beinhimnabólga til margra ára, krónískt compartement syndrom í kálfum, sinaskeiðabólgu nokkrum sinnum, flexion áverka á mjóbak og hypermobilitet í kjálka.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home