miðvikudagur, júlí 12

Hvernig týpa ert þú? Ég er ég

Ég er orðin mjög þreytt á þessu endalausa týputali. Það er alltaf verið að flokka fólk eftir týpum, tónlistartýpan, íþróttatýpan, MH týpan, Versló týpan, bókmenntatýpan, bíladellutýpan, opna týpan, lokaða týpan, listó týpan og svo mætti lengi telja áfram. Þannig sýni ég ekki mikla hrifningu ef fólk spyr mig hvernig týpa ég er. Kæri mig ekki um að flokka mig í eitthvern hóp og haga mér eins og viðmið þess hóps segja til um. T.d. ef ég mundi vilja flokka mig sem 101 týpuna, sú týpa gæti verið eitthvað á þá leið að ég myndi leggja mig mikið fram um að klæðast óhefðbundnum fötum sem enginn annar á og líta út eins og ég hafi gripið eitthvað úr fataskápnum án þess að pæla í samsetningu fatnaðarins en auðvitað væri þetta allt útpælt. Svo mundi ég eiga litla íbúð í miðbænum og hafa allt rosa "flippað" inn í henni. Ég mundi náttúrulega ekki horfa á íþróttir né stunda þær, fyrir utan yoga, afró dans og eitthvað svona óhefðbundið. Tónlistarsmekkur minn væri eftir ákveðnum reglum, það væri t.d. ekki viðurkennt eftir stöðlum týpunnar að ég fílaði lag með desteny's child og ekki mundi ég voga mér að láta sjá mig í góðu grúfi með Justin á fóninum.

Í raun finnst mér bara sorglegt ef fólk er að gangast upp í því hlutverki að vera ákveðin týpa. Það er eins og fólk sé að missa af vissum gæðum í lífinu. Að vera það sjálft. Því svara ég einfaldlega, ég er ég.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home