laugardagur, júní 17

Gleðilega þjoðhatið



17. júní gengin í garð. Við Gugga siz röltum saman niður í bæ, gegnum hljómskálagarðinn sem var vel skreyttur hoppuköstulum, klifursúlu, mínígolfi og rennibrautum. Við heilsuðum upp á Jón Sigurðsson á Austurvelli en kransinn frá íslensku þjóðinni var kominn á sinn stað undir styttunni. Rákumst á Samma frænda og mæltum okkur mót við Eyglóu klukkan 13:30 undir klukkunni á Lækjartorgi. Við flúðum rigninguna með því að tilla okkur inn í Iðuhús og dreyptum á kakóbolla á meðan við horfðum á mannskarann ganga eftir Lækjargötu. Síðan var ferðinni heitið út á höfn, upp á Arnarhól og yfir á Laugarveginn. Eftir tveggja tíma göngu þar sem íslenska þjóðernisstoltið jókst með hverju skrefi var haldið heim á leið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home