þriðjudagur, október 10

Úff púff

Já úff púff, það er heldur betur nóg að gera og styttist óðum í vesturför okkar Elínar en við gerum eins og vesturíslendingarnir forðum daga, selflytjum okkur til Kanada. Það eru ekki nema 10 dagar í brottför. Gistum eina nótt í London á leiðinni út (ódýrasti möguleikinn). Sjáum til hvort við fáum ódýra gistingu á eitthverju hosteli, annars er það bara að sofa á farangrinum á flugvellinum og svo í Air Canada vélinni á leiðinni vestur.

Nóg á eftir að gera þar til að brottför kemur. Það þarf að halda tvo fyrirlestra, klára undirbúningsvinnu fyrir BS verkefnið, fara í eitt stykki próf, knúsa Andra og svo margt fleira.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ skvís skemmtu þér vel í kananda væri gaman að hittast þegar vel stendur á kveðja Þórdís Erla. p.s bið að heilsa Andra

10:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk takk, skila kveðju til Andra ;)

6:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home