laugardagur, ágúst 19

Menningarnott

Menningardagur og menningarnótt var prýðis skemmtun.

Ég, mamma, Gugga og Eygló kíktum niður í bæ og fylgdumst fyrst með tónleikunum á Laugarvegi.

Þar sáum við Flís, Jan Mayen, Jakobínurínu, Skáta og Hair Doctor.

Svo röltum við um bæinn í vesturátt og skoðuðum mannlífið og það sem var í boði hér og þar.

Fórum í kvöldmatarpásu í Hlíðunum hjá Eygló en svo var haldið áfram að rölta um bæinn og endað á glæsilegu flugeldasýningunni niður við sjóinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home