þriðjudagur, júlí 18

Sundlaugar Reykjavikur

Ég er svo lánsöm að vinna fyrir Reykjavíkurborg og hef því passa í allar sundlaugar Reykjavíkur. Það er ekki slæmt þar sem ég held að eitt skipti í sund kosti rúmar 250 krónur. Ég hef mest verið að stunda Vesturbæjarlaugina af þeirri einföldu ástæðu að hún er næst núverandi heimili mínu. Það er frábær að kíkja í hana eftir góða hjólaæfingu, skokka yfir í bestu gufu landsins og fara svo yfir í útikvennaklefann sem hefur að geyma fína æfingaaðstöðu með upphífingarstöng. Svo skokkar maður aftur yfir í gufuna og svo bara upp úr.

Ég þarf þó að fara talsvert oftar í vesturbæjarlaugina til að jafna þau skipti sem ég hef stundað árbæjarlaugina. Það er náttúrulega laug sem stendur fyrir sínu og hefur allt enda fór ég oft tvisvar á dag í hana sumarið sem hún var opnuð fyrir þó nokkrum árum síðan. Þá kláraði ég þrjá sundboli yfir eitt sumar. En nóg um sund, rock star supernova á eftir og á ég eftir að vaka yfir þættinum? Nei, held ekki, er þetta ekki endursýnd? En vonandi kemmst Magni áfram, áfram Ísland.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home