miðvikudagur, ágúst 2

Spann








Þá er ég komin heim úr tveggja vikna sólarlandaferð. Tengdó buðu okkur Andra út í sólina á Spáni. Þar var ýmislegt gert þó svo að 35 stiga hiti upp á hvern dag bjóði ekki upp á miklar athafnir, utandyra að minnsta kosti. Svo ég stikli á stóru þá fórum við nokkrum sinnum ströndina, Gugga siz kíkti í heimsókn í nokkra daga, fórum til Albir og kíktum á gamla handverksbæinn. Svo keyrðum við inn í landið í þjóðgarð nálægt borginni Murcia. Þar ókum við upp á 1500 m hátt fjall og skoðuðum gamlan kastalabæ. Einn daginn kíktum við svo á útsölurnar í H&M og Söru. Einnig voru ýmsar góðar bækur lesnar, gott vín bragðað og góður matur etinn. Þá fórum við í Max- gym til að pumpa byssurnar sem og útihlaup eitt kvöldið. Allt í allt, snilldar ferð.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home