Road Trip - Verslunarmannahelgin
Dagur 1
Ég og Heiða lögðum af stað frá Reykjavík á föstudaginn á rauða polonum hennar Heiðu sem var áberandi á þjóðveginum sökum þess að 4 kayakar voru geimdir á toppnum. Við brunuðum alla leið í Ásbyrgi og vorum mættar um 9 leitið.
Við röltum inn í dalinn og vorum svo heppnar að Sigurrós var byrjuð að spila þegar við vorum að rölta inn í botninn. Það var mögnuð upplifun að ganga meðfram klettaveggjunum og heyra ljúfu tónana úr öllum áttum, það var eiginlega eins og tónlistin kæmi út úr klettaveggjunum. Elín og Birna hittu okkur á tónleikunum en þær voru að keyra frá Ísafirði og komu því aðeins á eftir okkur.

Þegar tónleikarnir voru búnir röltum við að vatninu sem er alveg í botni Ásbyrgis. Það var komið niða myrkur og okkur brá í brún þegar við heyrðum dynk innan úr skóginum. Svo komum við að vatninu og þar stóðu fjórir agndofa strákar sem horfðu upp í loftið. Þeir sögðu okkur að við hefðum rétt misst af "bace jumpara" sem var að hoppa ofan af klettunum beint fyrir ofan tjörnina. Strákarnir voru glaðir þegar þeir sáu mann upp á klettunum og kölluðu til hans og veifuðu en brá heldur betur í brún þegar hann smellti sér fram af brúninni. Við trúðum sögu strákan því við Heiða höfðum séð mann með fallhlíf í poka á röltinu inn dalinn þegar tónleikarnir voru að byrja.

Dagurinn endaði svo með 6 tíma svefni í tjaldi á bílastæðinu, en tjaldstæðið sjálft var allt fullt.
Dagur 2
Vöknuðum snemma og elduðum okkur hafragraut. Keyrðum svo yfir í hljóðakletta og skoðuðum þá. Því næst var keyrt hinu megin við Ásbyrgi að Dettifossi og brugðið sér út úr bílnum til að skoða vatnsmesta foss Íslands enda glampandi sól og 25°. Svo var ferðinni heitið áfram yfir á Egilsstaða en það var tekin smá sólbaðspása á leiðinni.

Þegar við komum til Egilsstaða tók Bryndís á móti okkur með lykla að tveimur herbergjum á Hótel Hérað handa okkur. Þetta breyttist því í lúxusferð. Við fórum svo í skoðunarferð með Bryndísi og röltum meðfram Eyvindarfjarðaránni sem liggur sunnanmegin við bæinn. Svo var svamlað í ánni við gömlu brúnna og Heiða stökk fram af brúnni niður í ánna (10m) og Bryndís og Elín hentu sér út í fram af klettum aðeins ofar í henni.

Svo var skellt sér í sturtu og kíkt til Bryndísar í dýrindis kvöldmat. Við fórum svo í partý til Júlíu og Sindra og endaði það partý í lauginni á Egilsstöðum klukkan 3 um nóttina.
Dagur 3
Snæddum dásamlegan morgunverð á hótelinu. Því næst var farið á kayak í Grímsánni sem liggur inn dalinn og er ákaflega falleg, alveg tær þannig að það sést til botns.

Við fengum svo kvöldmat á hótelinu og hjálpuðum til með uppvaskið eftir þetta metkvöld þar sem 55 lausafólk snæddi kvöldverð á hótelinu. Eftir hressandi púl í eldhúsinu keyrði Bryndís með okkur yfir í Fellabæ og kíktum við á bar þar sem heitir Svarthvíta hetjan. Þetta kvöld var í alla staði frábært og þegar við komum heim um 4 leitið þá höfðum við dansað allt kvöldið, ég og Birna stigum upp á svið og sungum stál og hnífur með hljómsveit staðarins (eitthvað sem maður gerir bara út á landsbyggðinni :) Elín var svo heppin að fá blóm frá einum algerum "högna". Við vinguðumst svo við lögregluna sem skuttlaði okkur svo heim á hótelið og skipti það hana engu þó svo við værum fimm í aftursætinu.

Dagur 4
Vöknuðum snemma til að missa ekki af morgunverðinum. Elín og Heiða skelltu sér svo niður Evyndará (sem er víst svipuð Rangá í erfiðleika) á kayak en við hinar fylgdumst með þeim koma niður og tókum nokkrar myndir.

Við pökkuðum svo dótinu saman og fengum frábært ferðanesti hjá Bryndísi. Svo skildust leiðir, Bryndís var eftir og Elín og Birna fóru norður leiðina til baka en við Heiða skelltum okkur suðurfyrir. Við fórum öxa og það var dásamlegt að koma niður í Berufjörð. Við stoppuðum við stóra hnullunginn í firðinum og ég klifraði í honum. Það var ljúft að geta klifrað aðeins en það var alltaf blautt á Egilsstöðum (nema fyrsta daginn) þannig að það varð ekkert úr klifri þar.

Við dóluðum okkur svo yfir í Skaftafell og elduðum okkur gourmet pasta um kvöldið. Svo var bara skellt sér í svefnpokann og dottað.

Dagur 5
Vaknað 05:50, tjaldinu pakkað saman og brunað í bæinn. Frábær ferð í alla staði.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home