Canada - Halifax

Jæja, við Elín erum víst að skreppa til Canada um miðjan október. Við erum ekki alveg búnar að átta okkur á þessu en svona er þetta víst. Við verðum í ca. tvo mánuði og munum stunda verklegt nám við the Quen Elisabeth health sience center sem er víst í hjarta Halifax. The Dalhousie University reddaði okkur þessum verknámsstað en ég verð í neuralogical rehabilitation en Elín í einhverju sem kallast family care/pain, en það er víst svona almennings sjúkraþjálfunardeild. Allavega þá er fullt af góðum klifurhúsum þarna en því miður of kalt til að klifra úti. Svo er fullt af góðum straumvatnsám fyrir Elínu og skíðasvæði í klukkutíma akstursfjarlægð. Þannig að við munum örugglega finna eitthvað að gera annað en að vinna og liggja yfir skólabókunum.

6 Comments:
dalhúsí? haaa? ætli það sé rétt, hvernig á maður að segja þetta..hummm? til hamingju með þetta stelpur.
Þó ég sé ekki snillingur í enskum stíl þá get ég fullvissað þig um að þetta sé rétt. Var einmitt að velta því fyrir mér af hverju þetta væri skrifað svona :)
Unnur Bryndís
Ég ætla að halda brjálað partý allan tímann sem þú verður úti.
AB
´Góða ferð út :o)VÆri alveg til í að vera að fara með ykkur!!!
Kanadíski fáninn er ógurlega fallegur finnst mér :)
20.okt.. það styttist í þetta:)
Takk fyrir fríður. og já það styttist heldur betur í þetta, ekki nema rétt rúmar tvær vikur, sjitt.
kv. Unns
Skrifa ummæli
<< Home