Gott slútt
Var í þessum töluðum orðum að klára síðasta fyririrlesturinn minn í fjögurra fyrirlestrarhrinu sem gengið hefur yfir á síðustu viku. Þessi fyrirlestur var um endurhæfingarprógramm aldraðra á Ísafirði. Síðan var einn fyrirlesturinn um áhættuþætti og forvarnir krossbandameiðsla. Annar var um ávinning hreyfingar varðandi líðheilsu og að lokum var einnig fyrirlestur úr vinnuvistfræðinni. Maður fer að vera ansi sjóaður í að tala fyrir hópi fólks en mér skilst að það sé meðal annars markmiðið með þessum endalausu fyrirlestrum, æfa okkur fyrir BS kynninguna við útskrift næstkomandi haust. Talandi um BS þá er nóg eftir að gera fyrir brottför af landi.
En yfir í skemmtilegri sálma, þá var Gugga siz að fjárfesta í eitt stykki íbúð. Hún var að kaupa krúsílega íbúð á Karlagötu og á eflaust eftir að gera götuna heldur betur dömulegri.
Svo er blakæfing í kvöld þannig að maður fer að æfa sig í fleigi, fingurslagi og auðvitað smössunum ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home