Enn meira brimbretti
Já við skelltum okkur aftur í dag á brimbretti.

Humm, hvernig ætli öldurnar séu í dag.

Jú, Elín "slætar inn" og er bara nokkuð ánægð. (ATH! ekki búin að læra sörf lingoið ennþá)

Ég að brjóta mér leið í gegnum hvíta frussið.

Elín var sátt með daginn....

Og ég var sátt með daginn
ATH! hefðum viljað vera með góða súm linsu til að taka nokkrar glut. max myndir ;)

Humm, hvernig ætli öldurnar séu í dag.

Jú, Elín "slætar inn" og er bara nokkuð ánægð. (ATH! ekki búin að læra sörf lingoið ennþá)

Ég að brjóta mér leið í gegnum hvíta frussið.

Elín var sátt með daginn....

Og ég var sátt með daginn
ATH! hefðum viljað vera með góða súm linsu til að taka nokkrar glut. max myndir ;)

3 Comments:
Sætar myndir af ykkur.Er í vinnunni,rólegt í bili.Mikill snjór á landinu,allir þurftu að moka sig út í gær.Hringi á þig í kvöld.
Hæ Unnur, loksins kemst ég inn á síðuna þína, búin að reyna lengi, var farin að halda að ég þyrfti að kaupa áskrift, ætli ástæðan sé ekki sú að Andri er alltaf á netlínunni, hann er svo ástsjúkur, nú ráfar hann bara um borgina með visky í annarri og gítarinn í hinni og syngur ástarlög fyrir gangandi vegfarendur sem gauka að honum smáaur. Þetta er rosalegt ástand. En gott að sjá að þú ert að blómstra, svoldið skrýtið að þið Matta skulið báðar flýja fjölskylduna á sama árinu, tvær fallegustu og gáfuðustu konurnar, þú getur rétt ímyndað þér hvernig fjölskylduboðin eru núna, BARA¨RUGL. Farðu vel með þig kær kv Hildur Eir
Vá! Ég fékk Andra til að sýna mér síðuna þína. Það er ljóst að þú hefur ekki tapað persónueiginleikum þínum í útlandinu, eilíft at og fjör!! Gaman að þessu.
Það er væri óskandi að Andri væri svona glaður. Núna er hann fluttur kjallarann til okkar og farinn að drekka kókómjólk öll kvöld. Hann grætur ofan í bollann sinn og talar um hana Unni sína í síbylju. Hann neitar að skipta um föt og raka sig, segist bara ætla að bíða þangað til þú kemur. ... Gætir þú ekki sent nokkrar myndir þar sem þér leiðist. E.t.v. myndi það hressa hann við.
Þinn mjög svo áhyggjufulli tilvonandi Bjarni tengdafaðir.
Skrifa ummæli
<< Home