fimmtudagur, nóvember 16

Gamlir skólafélagar


Fórum í verklegan stoðkerfis tíma í dag, mjög góður tími þar sem við vorum að fara yfir mismunandi æfingar fyrir bolinn. Fjórir kennarar voru að kenna í þessum tíma, einn þeirra er gamall skólafélagi Svandísar (kennari okkar heima). Þær voru að læra sjúkraþjálfun saman í Manitoba, held ég. Hún vildi endilega fá mynd af okkur saman og svo áttum við að senda hana til Svandísar með kveðju.

Blak í kvöld, jibbí. Elín er á fótboltaæfingu núna en ætlar að koma í blakið líka í kvöld.

Ps. var að lesa frábært blogg hjá Jenna þar sem hann greinir frá nokkrum mögulegum þýðingum á íslenskum orðatiltækjum, er að hugsa mér að nota hluta af þeim hérna úti, t.d: the raisin at the end of the hotdog, I come completely from mountains, now there won't do any mitten takes, he's completely out driving, it lies in the eyes upstairs, he stood on the duck, stomp steel into them, I took him to the bakery, in a green bang, he doesn't walk whole to the forrest, I will find you on a beach, I teach in breast of him. Takk Jenni, hló mikið af þessu ;)

Svei, er með massífar harðsperrur í fibularis vöðvunum út af nýja æðinu, hjólabretti, tib. ant er líka orðinn ansi stífur, veitir EKKI af því.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home