miðvikudagur, nóvember 8

Háir hæla

Já ég verð að viðurkenna að mér finnst hælaskór oft flottir og ég skarta þeim oft við gleðiefni eins og í veislum o.s.frv.

Það sem hefur komið mér einna mest á óvart á sjúkraþjálfunarstöðinni (fyrir utan að mér líður eins og ég sé komin 15 ár aftur í tímann, miðað við fatnaðinn sem sjúkraþjálfararnir klæðast)þá eru talsvert margir sjúkraþjálfarar (kvk) í háum hælum í vinnunni. Það er svolítð sérstakt að horfa á sjúkraþjálfara klöngrast upp á breiðbekk og taka MMT (manuel muscle test) í háum hælum. Hvað þá leiðbeina við göngu og skóval. Sem betur fer er kennarinn minn ekki að bæta upp fyrir sína litlu lofthæð með því að klæðast þessum skófatnaði.

Tveir af sjúllunum mínum eru nýbyrjaðir að fara í weight support göngu. Þetta eru einstaklingar sem ekki geta staðið í fæturnar en það að fá heilann til að skynja göngu og göngumynstrið gefur aukna líkur á hraðari bata. Sumsé þeir þurfa að klæðast beltum og svo er tekin ákveðin þyngd af þeim, t.d. 40% og svo ganga þeir á göngubretti, í raun stjórnum við fótleggjunum, allavega ennþá :)

Lost á eftir í sjónvarpinu, ú, stæltir kroppar, jibbí.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Fínar myndir.Er í vinnunni.Fáum fyrirlestur á eftir um misþroska merg!!Gaman að lesa bloggið og sjá myndirnar.Hafðu það gott elskan.

9:06 f.h.  
Blogger Guggan said...

Já það er bara algjör snilld hvað þú ert dugleg að blogga og sýna myndir...þú misstir af æðislegri hollustuköku og bananabrauði í afmælinu í gær, við getum sko bakað um jólin! Þar sem ég býst við að afgangarnir verði ekki enn til staðar eftir mánuð...
Svo verður þú að sjá South park the movie til að sjá Blame Canada lagið...fæ það alltaf í hausinn þegar ég skoða myndir af kanadíska fánanum.

9:16 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Haha, athyglisverður fyrirlestur ;)

Já við verðum duglegar að baka um jólin, segi þetta reyndar alltaf og virðist ekki alveg standa við það ;)

8:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home