sunnudagur, nóvember 5

Fræga fólkið


Það vildi svo skemmtilega til að um daginn var ég í litlum verslunarklasa að sötra á vatninu mínu og jappla á banana. Ég lít snöggvast upp og sé hávaxinn dökkhærðan, skeggjaðan mann ganga fram hjá mér og horfa snögglega á mig á leið sinni út. Tveir menn gengu á eftir honum, ath! ekki við hlið hans. Allt í einu fór ég að hugsa um "friends" og vitið menn, þetta var hann Tom Selleck. Yfirvaraskeggið olli því að ég áttaði mig. Núna bíð ég bara eftir því að næsti frægi einstaklingur labbi fram hjá mér, hlakka til að sjá hver það verður ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home