Ferðin til Kanada
Jæja, þá erum við Elín komnar til Halifax.
Við lögðum af stað frá Íslandi á föstudagsmorguninn. Við flugum til London, Gatwick og svo tékkjuðum við okkur inn á hostel rétt við Paddington stöðina. Á hostelinu þurftum við að deila herbergi með þrem öðrum einstaklingum, sem var svosem ókei. Það sem var ekki ókei var að ég fékk magapínu um nóttina á tókst að æla 9x fram til morguns. Svo áður en við lögðum að stað skellti ég smá gúmmelaði til viðbótar í sameiginlegu klósettin sem ég kynntist svo vel yfir nóttina. Það er alveg á hreynu að ég mun ekki koma til með að gista þarna í náinni framtíð.
Sem betur fer var bara smá magaverkur næstur á dagskrá samfara ferðinni okkar til Kanada. Við skelltum okkur í lest til Heathrow og tékkuðum okkur inn. Þurftum að bíða í stórum röðum til að komast inn með handfarangurinn. Svo var bara sofið á leiðinni til Halifax með AirCanada og ég held mér hafi tekist að borða 1 og 1/2 sojajógúrt.
Þegar við komum til Halifax var bóksaflega eins og útlendingaeftirlitið hafi beðið allan daginn eftir okkur og fengi núna loksins eitthvað að gera. Við vorum ekki búnar að fara í medical examination og samkvæmt upplýsingum frá konunni í útlendingaeftirlitinu þurftum við að gangast undir þessar rannsóknir, held við þurfum að fá bólusetningar líka, til að geta hafið nám okkar við spítalann. Svo fyrst biðum við í ca 40 mínútur meðan hún var að fá allar upplýsingarnar. Svo vorum við settar inn í yfirheyrsluherbergi og þar átti að taka andlitsmyndir af okkur. Konan kunni náttúrulega ekkert á myndavélina og sagðist fara fram til að laga hana. Við heyrðum svo í henni vera að spjalla um daginn og veginn við samstarfsfélga á meðan við biðum í ca 30 mínútur inn í herberginu. Þá vorum við orðnar svolítið pirraðar og bönkuðum á hurðina til að minna á okkur. Kjella kom og sagði að við þurtum nú ekki að bíða inn í þessu litla herbergi og gætum farið fram. Eftir að hafa verið um 2 tíma að bíða hjá útlendingaeftirlitinu á flugvellinum fengum við þær upplýsingar að læknir á vegum háskólans skyldi taka prófin á okkur og rannsóknirnar þarf að senda til Ottowa. Við getum hring á föstudaginn til að sjá hvort niðurstöður séu komnar en megum ekki hefja okkar verknám fyrr en þær eru komnar og allt er í lagi.
Justin,sem er hluti af "liðveislunni" sem við höfum í kringum okkur hérna úti, beið eftir okkur allan tímann á flugvellinum og keyrði okkur svo inn í Halifax. Svæðið er ákaflega flatt en er þéttvaxið af trjám. Stór höfn skiptir borginni í tvennt og erum við í syðri hlutannum sem er Halifax en norðurhlutinn nefnist Dartmouth. Lang flestir íbúar Halifax vinna í Kandaíska flotanum sem er auðvitað staðsettur við höfnina. Halifax búar þekkja mjög lítið til íslands en geta ímyndað sér að það sé dýrt að búa þar miðað við varninginn sem fluttur er hingað með íslensku skipunum.
Íbúðin sem við munum búa í næstu tvo mánuðina er vel staðsett. Hún er stutt frá spítalanum og einnig stutt frá ágætis líkamsræktarstöð með veggtennissölum. Marcel og Jon leigja þessa íbúð og eru báðir nema við Háskólann. Við leigjum því herbergi af þeim. Þetta eru mjög fínir piltar, rólegir, ekki þessir ýktu kanar. Kærasta Marcel útvegaði okkur queen size rúmi þannig að það sparar okkkur pening. Hérna í íbúðinni er ókeypis net og því hægt að niðurhala eins og mann lystir.
Á morgun hittum við verkmenntakennaran okkar Gail og þá kemur í ljós hvernig og hvenær veknámið byrjar. Bless í bili.

2 Comments:
Skemmtilegur pistill.
Bið sérstaklega að heilsa Gail.
AB
Hæ dúlla.
Er í vinnunni og var að lesa bloggið þitt.Þetta var nú meira að fá þessa magapest í London.Við pabbi höfum verið að hjálpa Guggu að mála íbúðina um helgina. Andri kom í mat á sunnud,kv.og var gaman að fá hann. Hér er sama dýrðarveðrið,sól og logn,dásamlegt haust.Hlakka til að lesa næst blogg frá þér. Þín, Mamma.
Skrifa ummæli
<< Home