Daginn í dag, daginn í dag...

Já dagurinn í dag snérist um verslanir. Við fundum mjög flotta búð í stuttri göngufjarlægð frá okkur sem selur flottar stelpu/snjóbretta-flíkur. Elín er að spá í að kaupa sér eina úlpu úr búðinni. Ég keypti mér mjóg sæta húfu, bleika og brúna, hún er soldið spes en mjög krúsíleg.

Við skruppum á Farmers Market, sem er alla laugardaga til eitt að hádegi. Komumst að því að allir Halifax búar fara á þennan markað hvern laugardag. Markaðurinn er gífurlega stór og allskyns vörur er hægt að fá þarna, þó helst matvæli eins og grænmeti, ávexti, fisk og kjöt.

Lærðum svo smá á strætókerfið og fórum yfir flóann til Dartmouth í verslunarmiðstö sem nefnist MicMac. Þar var smá aurum eitt í hitt og þetta, allt nauðsynjavörur auðvitað. Þegar við ætluðum að taka strætó heim og vorum búnar að bíða í 15 mín í kuldanum spurðum við konu sem beið einnig í skýlinu hvenær strætóinn kæmi nú. Hún vissi það ekki en ætlaði að taka leigubíl því hún væri búin að bíða lengi. Hún bauð okkur að sitja í því við værum nú á sömu leið. Þessi kona var af Tyrkneskum upprunna en hafði búið lengi í Montreal og sagði að við yrðum að fara þangað við tækifæri. Hún var nýflutt til Halifax og harðneitaði að við myndum borga með henni leigubílinn þar sem við værum nemar, það bara kom ekki til greina. Við kvöddum hana og skunduðum heim og elduðum okkur að sjálfsögðu hollan og góðan kvöldmat. Svo var prjónadótið tekið upp og ætla ég mér að "henda" í eina húfu í kvöld.

1 Comments:
þú ert æði. Eins og þetta blogg.
AB
Skrifa ummæli
<< Home