laugardagur, nóvember 11

Sweet home..


Gott veður var í morgun þegar ég kíkti út á svalir, "oh what a wonderful morning".


Elín byrjaði daginn á því að "læra" :)


Svo var haldið í Farmers Market, kaffi gripið og morgunmatur etinn.


Fylgdum svo mannmergðinni þar til við komum að stað þar sem mynningarathöfnin var haldin.


Þjóðsöngurinn var sunginn, lúðrasveit spilaði, púðurbyssuskotum skotið og að lokum var þögn í nokkrar mín.


Elín kláraði svo kaffið sitt. Hún var annars voða krúsíleg í nótt þegar hún talaði upp úr svefni og spurði mig tvisvar " are you okey".

Ps. vitum ekki hvernig þetta verknám á eftir að enda, smá babb í bátinn, kanski verðum við á skólabekk með elsta árinu það sem eftir er, eða aftur til íslands. en það er önnur saga :)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, gaman að fá fréttir af þér :). Vonandi verður þetta frábær ferð hjá ykkur þótt að hlutirnir byrji svoldið brösulega, fall er fararheill! Það er gott að vita af þér hinu megin við landamærin, hlakka til að hitta þig þegar að við erum báðar komnar heim. Kv. Matta

12:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ha, er þetta búið? Hvað ertu að tala um. Við viljum sjá fleiri myndir hér á klakanum! Allavega bekkjarsibblingsarnir.

2:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já fleiri myndir á leiðinni, ekki spurning. Verðum að læra áfram hérna, fara á klíník og verklega tíma með krökkunum í skólanum, fáum það að hluta metið en svo þurfum við að vinna samfara BS í jan,feb til að vinna upp nokkrar vikur.

6:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home