miðvikudagur, nóvember 22

Tónlist og dans

Við Elín erum sem stendur að velja tónlist til að hafa í kennslunni á morgun því þá er fyrsti æfingardagurinn í námskeiðinu. Kennarinn lét okkur hafa fullt af tónlist sem við getum valið úr. Við viljum endilega gauka nokkrum íslenskum inn á milli, þökkum allar góðar hugmyndir. Ætlum kannski að leifa fólkinu að hlusta svolítið á Hljóma samfara æfingunum ;)

Skeit (hjólabretti) hæfileikarnir fara sífellt vaxandi enda þeytist ég um á brettinu eftir öllum götum (gangstéttum ;).

Stefnan er tekin á danstíma á laug og sunnudag, líklega hip hop dans á laugardag og break á sunnudag. Fyrsta skipti hjá okkur báðum þannig að þetta verður fróðlegt.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Eru þessir danstímar á vegum skólans eða prívat? Kv.

1:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er prívat stúdío, að sjálfsögðu rétt hjá þar sem við búum (allt í 5mín fjarlægð frá íbúðinni, gott að búa miðsvæðis). Margskonar danskennsla þarna í boði ;)
Ég vænti þess að þið pabbi séuð að massa danskennsluna ykkar, enda nóg af árshátíðum til að sýna afraksturinn ;)

8:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já við vorum í danstíma í gær og tókum enska valsinn og sömbuna með stæl!! Svo er jólahlaðborð í perlunni í kvöld með konunum í vinnunni.

11:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Unnur mín, þetta mun fara með Andra en hvernig Hljóma samfara æfingar.
Þú hefur áður minnst á Súludans æfingar og nú koma samfara æfingar þ.e. hvernig þær Hljóma :)
Heimir Orðagrínari

11:39 f.h.  
Blogger AB said...

HA HA HA

Þú gætir nú bara verið með uppistand Heimir.

NOT!!!

AB

12:07 e.h.  
Blogger Guggan said...

hmm til varnar Heimi þá brosti ég nú út í annað. Myndi ekki ganga svo langt að segja að ég hafi hlegið ...en já það koma smá vipra á annað munnvikið. Haltu áfram orðagríninu Heimir og ekki láta neinn halda þér niðri:D

1:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahaha.. já, þarna tókst þér að gauka inn einum orðabrandara, búinn að vera í nánum samskiptum við Árna H. eða hvað?

8:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home