sunnudagur, nóvember 26

Fyrri hluti helgarinnar

Skruppum í gærkveldi á tónleika sem fyrrum sjúllinn hennar Elínar bauð okkur á. Hún er sprenglærð sópran söngskvísa. Hún ásamt annarri tónspíru sem lék á píanóið héldu tónleikana og fjölluðu þeir um ástina og höfðuðu til húmorsins, enda hlóum við mikið ;) ekki oft sem sópransöngkona bregður sér í slopp, ryksugar og syngur hvern einasta tón falskan í yesterday (bítlarnir sko).

Í dag var farið í heljarinnar jólagjafaverslunarleiðangur/búnaðarreddingsferð. Skruppum á "Crafts fair" sem haldinn var í íþróttahúsi háskólann. Þarna voru allskonar listrænir munir, misstum okkur í einum básnum en ég get ekki sagt hvað var þar á boðstólum, kemur í ljós á aðfangadagskvöld. Erum farnar að klóra okkur í höfuðið hvað varðar flutning á öllu "stuffinu" til Íslands, verkefni næstu viku.

Tókum eina góða skvass lotu í uppáhaldsgyminu okkar (held að þetta sé gym fyrir verkfræðidúddana). Allavega fullt af skrítnum/buff (að ofan) vöxnum gaurum, ekki að verkfræðingar séu þannig almennt (mér finnst bara svo gaman að búa til steríótípur).

Vorum að koma af skemmtun sem heitir For The Health Of it. Þarna koma saman heilsugreinarnar í Dal og halda skemmtun til styrktar góðu málefni. Mikill fjöldi fólks mætir að horfa á, kennarinn hennar Elínar og fleiri úr Rehab mættu. Hver grein keppir um besta atriðið. Að sjálfsögðu vann sjúkraþjálfun besta "overall" atriðið. þeir voru með skemmtilega túlkun á Mario Bros með sjúkraþjálfunarþema. Hápunkturinn að mínu mati var endirinn á skemmtiatriði læknanemana þegar öll ljósin sloknuðu og viti menn hvaða tónlist hljómaði, Sigurrós. Svo kveiknuðu fullt af litlu ljósum (þeir héldu á þeim), þau mynduðu hjarta sem sló (geggjað) svo mynduðu þau hjartalínurit, ennþá meira geggjað.

Erum í chilli heima á leið í partí yfir götuna, Lisa ein svaka hress sjúkraþjálfunarskvísa heldur partíið. bless í bili

4 Comments:

Blogger Guggan said...

Er Elín í rehab?
greyið..og svona ung...

5:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrð skvís, hvernig væri að þú værir duglegri að blogga og svo er ég enn að bíða eftir myndunum af nýju íbúðinni. Verð að sjá í hvernig umhverfi ég verð að "chilla on the west side" eftir áramót.

9:29 e.h.  
Blogger Guggan said...

já ég veit, er ekki enn komin með netið og á ekki myndavél. Aumingjans ég. Ég redda þessu bráðlega:)

9:43 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er aldeilis stuð á ykkur,það virðist vera nóg að gera hjá ykkur í skemmtunum!!Munið bara að panta hótel í London í tíma.

3:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home